Auðn
Farvegir Fyrndar



1. Veröld hulin

Fjarri geislum sólar
Liggur veröld hulin
Á sporbaug glötunar
Heimur án hlýju
Heimur án birtu
Eldri en tíminn sjálfur

Þar sem þúsund augu
Stara út í tómið
Með von eina að vopni
Leitandi svara
Hver er skaparinn
Af hverju erum við?

Í þyngdarleysi
Þúsund raddir kæfðar


2. Lífvana jörð

Það var hér
Sem vatn um dali rann
Sólin skeið í heiði
Sá tími er liðinn
Jörðin lögð í eyði

Svartir hrafnar
Sveima í leit að æti
Landið þurrt sem eyðimörk
Stormar geysa
Afmynda yfirborð jarðar
Farvegir fyrndar bera aur og ryk

Lífvana jörð
Svidin jörð

Djúpt í iðrum gils
Við hamra hafs sem áður var
Skimar vera grá og mögur
Grimmdin holdi klædd
Vitstola af hungri

Trú og spilling
Valdur grimmdarverka
Helför allra þjóða
Eftir el neitt


3. Haldreipi hugans

Í skjóli timans
Í skuggunum falinn
Tilvist mín er martröð þín

Ég er upphaf
Ég er endir
Þunga færi yfir þig

Holið og tómið
Sá sem ræður
Rýs og fellur
Ég er allt sem ekkert var

Í þúsund ár
Í myrkri devlur
Og daga telur
Allt seg ég var, allt sem ég er

Hýsill íllsku
Holdgervi svika
Haldreipi hugans
Aldrei mun hnika

Afhjupa grímuna
Draumkennd þoka
Byrgir sýn
Lít í spegil, ekkert svar
Það ókunnugur maður þar

Nýr maður fæddur er
Milli holds og huga
Í öllum mönnum
Illskan býr
Skelfileg iðja
Martraða smiðja


4. Prísund

Þú sem tókst ljósið frá mér
Í myrkri ég bölva
Þessi prísund, hún er mín
Ég vildi geta horfið

Minnist þess
Að geta gengið
En nú ég skríð
Fætur titra
Og gefa eftir
Leynist þarna
Vonarglæta?

Ljósið blindar
Þankastormur
Eilífar efasemdir
Vonleysið algjört

Það varst þú sem tókst frá mér ljósið
Myrkur á hælum mér
Það varst þú sem tókst frá mér ljósið
Það varst þú


5. Ljósaslæður

Dagur liðinn
Allt er hljótt
Köld og niðdimm nótt
Hafið slétt við mánaskin
Speglar stjörnuhiminn

Umvafinn draugum
Í klæddum ljósaslæðum
Á myrkrið málar meistarinn
Skartar ljósi daufu

Dansar við þögnina
Í aldagömlum takti
Dauðar stjörnur brostin augu
Frosið blóð í æðum

Helköld grafarþögn
Auðn er orðin jörð
Máni stendur vörð
Um norðurljósa traf


6. Blóðrauð sól

Blóðrauð sól
Daginn vakti
Rauðgul spor
Nóttin rakti

Vætlar blód úr und
Litar jörð
Morgunsár opnast
Við sjóndeildarhring

Rauður kollur sólar
Brýst úr sköpum heims
Seytlar blód
Yfir lád og lög
Rautt síðan gult

Svartir flýja skuggar


7. Eilífar nætur

Fórnað
Á altari tímans
Einn af mörgum
Hvorki sá fyrsti
Né hinn hinsti

Tíminn
Telur ei tár
Hver sem kveður
Meitlað í stein
Ár eftir ár

Söknuður
Sál mína sækir
Sektarkennd
Gröf þína grætur
Í eilífar nætur

Hafið rís
Endinn vís
Borgir sökkva í sæ


8. Skuggar

Opna gáttina
Hugur leikur laus
Kuldinn nístir
Myrkur umlykur
Skuggar leika
Form og myndir
Varpa ljósi
Á það sem áður var

Ein er sú minning
Eymdin var við völd
Staðföst trú um endalok
Útkoman kold
Allt varð hljótt
Ærandi þögn
Hún er mér
Framandi

Óljóst er
Hvort ég kem eða vöku
Var eða er
Er líf eftir líf?

Með skuggunum
Fer í myrkrinu
Líkt og áður
Nóttin alger
Er líf eftir líf?


9. Í hálmstráið held

Lífið er sýki
Ég er við að sökkva

Í lífsins virkisveggja
Hverf ég burt
Þar sem allt og ekkert er
Kemst á þurrt
En handans sýkis biður myrkrið

Lífið er sýki
Við hugans virkisvegg

Lífið er rammt og úti kalt
Þar sem veruleikinn á sér stað
Ég óttast allt

Nýr dagur
Útlit svart
Kaldara í dag en í gær
Læðist að mér grunur sá
Að vonin færist fjær

Ég óttast að ég dróma fái ekki leyst
Lífið er sýki og ég að drukkna
Sökkvandi virkið undan lætur
Í hálmstráið held ég
Og veröld mín grætur

En senn kemur nátt
Lífið sem lék mig svo grátt
Von eftir gef
Og legg aftur augun
Svefninum langa sef



Lyrics in plain text format



Main Page Bands Page Links Statistics Trading list Forum Email Zenial